Alexander Graham Bell
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Alexander Graham Bell (3. mars 1847 – 2. ágúst 1922) var skosk-bandarískur vísindamaður og uppfinningamaður. Hans er einkum minnst fyrir að hafa fundið upp símann (þótt bæði Antonio Meucci og Elisha Gray hafi einnig fundið upp síma óháð Bell). Hann er einnig talinn hafa fundið upp fyrsta málmleitartækið. Mælieiningin bel (desíbel) heitir í höfuðið á honum. Hann var virkur í hreyfingunni í kringum mannkynbótastefnuna í Bandaríkjunum.