Abrahamísk trúarbrögð
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Abrahamísk trúarbrögð eru þau trúarbrögð sem rakin eru til ættföðursins Abrahams, sem meðal annars er lýst í Torah (einnig nefnt „lögmál gyðinga“), Biblíunni, og Kóraninum. Þau eru eingyðistrúarbrögð og er haldið fram að þau eigi siðfræði sína að rekja til Abrahams. Þau telja sig einnig dýrka guðinn stundum nefndan Guð Abrahams. Helstu (og þau einu sem ekki er umdeilt að séu slík) abrahamísku trúarbrögðin eru Gyðingdómur, Kristni og Íslam.