Austin (Texas)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Austin er höfuðborg bandaríska fylkisins Texas. Árið 2004 var áætlað að þar byggju 656.562 manns, en það gerir borgina þá fjórðu stærstu í fylkinu og sextándu stærstu í landinu. Stór-borgarsvæðið telur um 1,4 milljónir og það er hraðast stækkandi borgarsvæði bandaríkjanna. Borgin stendur við Coloradoá í miðju Texas-fylki og eru þrjú manngerð stöðuvötn í ánni innan borgarmarkanna. Fyrst er vitað um byggð á svæðinu árið 1835 og var byggðarlaginu gefið nafnið Waterloo árið 1837. Það var svo tveimur árum síðar sem borgin, þá komin í eigu Lýðveldisins Texas, sem hún var nefnd eftir Stephen F. Austin. Texasháskóli hefur mikilvægt hlutverk í borgarlífinu og, meðal annars honum að þakka, hafa ýmis tæknifyrirtæki mikilvægar starfsstöðvar í borginni (meðal annars IBM, Apple og Samsung). Í borginni eru fleiri staðir til tónlistarflutnings á höfðatölu en í nokkurri annarri bandarískri borg.