Bókmenntafræði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bókmenntafræði er safnheiti allrar fræðilegrar umfjöllunar um bókmenntir, einkum fagurbókmenntir. Skáldskaparfræði, bókmenntasaga og bókmenntarýni eru helstu undirgreinar bókmenntafræði. Bókmenntafræði á sér djúpar rætur í vestrænni menningu sem teygja sig allt aftur í fornöld en verður ekki til sem sérstök fræðigrein við evrópska háskóla fyrr en á 18. öld.
Viðfangsefni bókmenntafræði hafa verið breytileg í gegnum tíðina en mótast þó alltaf af svörum við þremur spurningum, sem ætíð fléttast saman: Hvað eru bókmenntir? Hvað er eftirsóknarvert að vita um þær? Hvaða aðferðum er heppilegast að beita við rannsóknir á þeim?
[breyta] Heimildir
- Jakob Benediktsson (ritstj.), Hugtök og heiti í bókmenntafræði (Reykjavík: Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands, 1983).