Belgsegl
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Belgsegl eða spinnaker er sérstök gerð af segli til að sigla undan vindi (lens). Belgsegl eru þríhyrnd, stór og belgmikil, yfirleitt úr léttum nælonefnum, og er beitt fyrir framan bátinn, hengt í siglutoppinn. Yfirleitt er notað léttur útleggjari eða „spreddari“ út frá siglunni til að halda einu horni belgseglsins föstu. Þau skiptast í samhverf og ósamhverf belgsegl (gennaker).