Fornaldarheimspeki (fræðigrein)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
fræðigreinin fornaldarheimspeki er sameiginlegt sérsvið innan heimspeki og fornfræði, sem fjallar um heimspeki fornaldar, einkum gríska og rómverska heimspeki.
Þeir sem leggja stund á fræðigreinina nefnast ýmist heimspekingar, fornfræðingar og/eða heimspekisagnfræðingar og fer það stundum, en ekki alltaf, eftir menntun þeirra eða nálgun við viðfangsefnið.