Jómfrúreyjar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jómfrúreyjar eru eyjaklasi í Karíbahafinu. Eyjunum er skipt upp í tvo hluta. Annar er breskt yfirráðasvæði handan hafsins og kallast Bresku Jómfrúreyjar. Hinn hlutinn kallast Bandarísku Jómfrúreyjar og tilheyra Bandaríkjunum.
Kristófer Kólumbus skírði eyjarnar Santa Ursula y las Once Mil Vírgenes (stytt í Las Vírgenes) eftir Heilagri Ursúlu og 11.000 jómfrúm hennar. Á tímum landafunda voru þær byggðar af Karíb indjánum sem að Karl V, heilagur rómverskur keisari, útrýmdi þegar hann tók yfir eyjarnar árið 1555 fyrir hönd Heilaga rómverska keisaraveldisins.
Eyjarnar voru seinna byggðar af afrískum þrælum sem unnu á sykurplantekrum. Plantekrurnar eru nú horfnar, en afkomendur þrælanna búa þar ennþá. Ferðaþjónusta er þar nú aðalatvinnugreinin.
Á bæði Bresku og Bandarísku Jómfrúreyjum er ekið á vinsti helming og Bandaríkjadalur gjaldmiðillinn.