Kaldbaksvík
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kaldbaksvík á Ströndum er stærsta víkin á milli Bjarnarfjarðar og Veiðileysufjarðar í Kaldrananeshreppi.
Landnámsmaðurinn Önundur tréfótur nam þar land og byggði þar bæ sinn Kaldbak, að norðanverðu í víkinni. Á þeirri jörð stendur mikið hús sem byggt var skömmu eftir 1940 úr viðum húss kaupmannsins í Kúvíkum við Reykjarfjörð. Bærinn Kleifar stendur sunnan megin við víkina og er einungs notað til sumardvalar líkt og Kaldbakur. Fáein önnur smærri sumarhús í einkaeign eru í landi Kleifa.
Kaldbakshorn gnæfir yfir víkinni 508 metra hátt, sagnir eru af því að Svanur á Svanshóli hafi gengið í fjallið eftir að hann drukknaði út af víkinni og að þar hafi verið vel tekið á móti honum. Svanur bjó á Svanshóli í Bjarnarfirði. Sagan segir að göng liggi úr hlíðinni ofan við Svanshól undir fjallgarðinn og út um Svansgjá, sem er áberandi gjá í Kaldbakshorni. Þá leið notaði Svanur til að stytta sér leið er hann reri til fiskjar frá Kaldbaksvík.
Kaldbaksvíkurvatn er í dalnum inn af víkinni og þar nokkru ofar er að finna heita hveri með allt að 70°C heitu vatni.
Fjallendið milli Kaldbaksvíkur og Veiðileysufjarðar er á náttúruminjaskrá og hæsti tindur svæðisins er Lambatindur, 854 m.