Newton
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Þessi pistill fjallar um SI eininguna newton. Sjá einnig Isaac Newton.
Newton er mælieining krafts í SI kerfinu. Einingin er nefnd í höfuðið á breska stærðfræðingnum Isaac Newton og er táknuð með N.
Eitt newton er skilgreint sem sá kraftur sem veldur hröðun upp á einn metra á sekúndu þegar hann verkar á hlut með massa 1 kg. Þessari skilgreiningu má lýsa með jöfnunni:
Á yfirborði jarðar togar þyngdaraflið í 1 kg hlut með kraftinum 9,8 newton, svo þegar hlutur fellur til jarðar er hröðun hans 9,8 m/s2