Snæfell
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Snæfell | |
---|---|
Snæfell séð úr vestri |
|
Hæð: | 1833 metrar yfir sjávarmáli |
Staðsetning: | NA Vatnajökuls |
Fjallgarður: | Enginn |
Snæfell er 1833 metra há megineldstöð úr líparíti og móbergi. Skiptar skoðanir eru á því hvort eldstöðin er virk eða óvirk. Fjallið stendur um 20 km norðaustan Brúarjökuls í norðanverðum Vatnajökli (hnattstaða: 64°47.83′ N 15°34.53′ W) og er hæsta fjall utan jökla á Íslandi. Uppganga er tiltölulega auðveld frá Snæfellsskála en á toppi fjallsins er sísnævi þaðan sem mikið og víðfeðmt útsýni er til allra átta. Austan við fjallið eru Eyjabakkar sem er gróið svæði og kjörlendi gæsa. Á Vesturöræfum vestan fjallsins halda hreindýr mikið til og má oftast sjá til þeirra.
Tvö önnur fjöll á Íslandi bera sama nafn, Snæfell (1446 metrar) í Snæfellsjökli og Snæfell (1383 metrar) í Vatnajökli nærri Jökulsárlóni.