Tenzing Norgay
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Tenzing Norgay (29. maí? 1914 – 9. maí 1986) var nepalskur sjerpi sem tók þátt í sjö ferðum á Everestfjall, þar á meðal þeim leiðangri sem fyrst náði á tindinn 29. maí 1953 og var undir stjórn sir John Hunt. Þeir Edmund Hillary voru fyrstir manna til að ná á tind fjallsins, sem er í 8850 metra hæð.