Akbar mikli
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jalaluddin Muhammad Akbar (Persneska: جلال الدین محمد اکبر), oft nefndur Akbar mikli, (15. október 1542 - 27. október 1605) var keisari Mógúlveldisins 1556-1605 og er talinn mestur þeirra. Hann var meðal annars mikill stuðningsmaður lista og fræðistarfa og mikill talsmaður umburðarlyndis fólks af mismunandi trúarbrögðum, en í veldi hans bjuggu bæði hindúar og múslimar.