Kílógramm
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kílógramm (skammstafað: kg) er grunneining SI-kerfisins fyrir massa.
Nokkrar mælieiningar eru notaðar til að mæla massa sem eru nátengdar kílógramminu:
- 1 tonn er 1000 kílógrömm. (Samkvæmt forskeytum í SI–kerfinu ætti þetta réttilega að heita megagramm en í daglegu tali er tonn algengara.)
- 1 gramm er 1/1000 úr kílógrammi.
- 1 milligramm er 1/1000000 (einn–milljónasti) úr kílógrammi.
Kílógrammið var upphaflega skilgreint sem 1 lítri af vatni við 4° Celcius og 1 atm (staðalaðstæður þrýstings). Þessi skilgreining olli nokkrum vandkvæðum þar sem þéttleiki vatns er háður þrýsting og þrýstingur er háður massa (og þannig er skilgreiningin á mælieiningunni orðin háð sjálfri sér).
Kílógrammið var því endurskilgreint sem massi sívalnings úr Platiníu og Iridíum og er geymdur í Bureau International des Poids et Mesures.
Þrátt fyrir algengan misskilning er kílógrammið ekki mælieining á þyngd. Þyngd er háð aðdráttarkröftum og mæld með mælieiningunni Newton (N) (samanber þyngdar–leysi út í geimnum, ekki massa–leysi). Þyngd 1 kílógramma hluts við yfirborð jarðar er því: