Dyflinn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Þessi grein er um borgina Dyflinni (e. Dublin) á Írlandi. Sjá Dublin (aðgreining) fyrir aðra notkun nafnsins Dublin.
City of Dublin | |
---|---|
Obedientia Civium Urbis Felicitas „Glöð er sú borg þar sem íbúar hlýða“ |
|
Kort | |
WGS-84 (GPS) hnit: Bre. 53,3472°N, Len. 6,2592°V |
|
Flatarmál: | 114,99 km² |
Sýsla: | Dyflinnarsýsla |
Íbúafjöldi: | 495.781 (2002) |
Hérað: | Leinster |
Dyflinn eða Dublin (írska: Baile Átha Cliath, enska: Dublin) er höfuðborg og jafnframt stærsta borg Írska Lýðveldisins. Hún stendur við miðja austurstönd Írlands við árósa Liffey-ár, í Dyflinnarsýslu. Dyflinni hefur verið höfuðborg Írlands síðan á miðöldum.
Stóra Dyflinnarsvæðið vísar til Dyflinnarsýslu, Dun Laoghaire-Rathdown, Fingal, Kildare, Meath, Suður-Dyflinnar og Wicklow, en fólk ferðast enn lengri leiðir til þess að komast til vinnu.
Íbúafjöldi Dyflinnar var 495,781 við manntal 2002, en Dyflinnarsýsla hafði 1,122,821 íbúa og alls voru 1,565,446 íbúar á stóra Dyflinnarsvæðinu.
[breyta] Nafn
Nafnið Dyflinn eða Dublin er komið af Dubh Linn (írska: „Svartipollur“), sem er rétt nafn sýslunnar. Í forneskju var ‚bh‘ ritað ‚ḃ‘, þ.e. ‚b‘ með punkti fyrir ofan, og er það borið fram eins og ‚v‘. Í hinni normönskuskotnu ensku hvarf þessi punktur og þær framburðarupplýsingar sem honum fylgdu, og um síðir varð úr samsetta orðið „Dublin“. Sumir hafa þó haldið því fram að Dyflinn sé af Norrænum uppruna, af orðunum „djúp lind“. Þetta er þó ólíklegt þar sem nafnið Dubh Linn varð til áður en víkingar komu til Írlands. Í íslensku er orðið kvenkyns og beygist þannig: Dyflinn, Dyflinni, Dyflinni, Dyflinnar. Þess má geta að vanalega er orðið dubh ritað sem duff í germönskum málum, samanber bæina Carryduff og Gulladuff.
Á nútímaírsku heitir borgin Baile Átha Cliath, sem merkir „Bærinn við fjörð stilkstálmanna“. Hún var stofnuð árið 988 af hákonungi Írlands Mael Sechnaill II, átta árum eftir að hann tók hásætið á Tara.