Fálki
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fálki | |||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | |||||||||||||||
|
|||||||||||||||
|
|||||||||||||||
Falco rusticolus Linnaeus, 1758 |
|||||||||||||||
|
Fálki (Falco rusticolus) eða valur er stór ránfugl sem heldur til í freðmýrum og fjalllendi og við strönd og í eyjum á Norðurslóðum. Fálkar geta náð 60 sm lengd og vænghaf þeirra getur orðið 130 sm. Lögun og gerð vængja fálka gerir þeim kleift að fljúga óhemju hratt. Á miðöldum voru fálkar taldir fuglar konunga. Þeir voru notaðir í sérstaka íþrótt, fálkaveiðar sem voru nánast eingöngu stundaðar af konungum og aðli.
Íslenski fálkinn (Falco rusticolus islandicus) er ein deilitegund fálka. Önnur deilitegund er hvítfálkinn (Falco rusticolus candicans) sem verpir meðal annars á Grænlandi.
[breyta] Fálkar á Íslandi
Hann er staðfugl á Íslandi.. Talið er að 300 - 400 pör af fálkum verpi á Íslandi. Aðalfæða fálka er rjúpur en hann veiðir einnig endur, svartfugla og vaðfugla. Erlendis lifa fálkar einnig á litlum nagdýrum svo sem læmingjum. Í árum sem lítið er um rjúpur fækkar fálkum. Kjörsvæði fálka eru opin svæði. Þeir gera ekki hreiður heldur verpa beint á klettasyllur og nota oft gamla hrafnslaupa. Fálkar verpa oftast 3 - 4 eggjum. Eggin eru 5 vikur að klekjast út og ungarnir eru 7 vikur í hreiðrinu. Eftir það annast foreldrarnir þá í 3 vikur í viðbót en svo verða þeir að bjarga sér sjálfir. Ungarnir flakka um landið þangað til þeir verða tveggja til fjögurra ára en þá setjast þeir að á eigin varpstað. Fullorðnir fálkar dveljast allt árið á óðali sínu. Talið er að allt að fjórðungur af Evrópustofni fálka verpi á Íslandi. Fálkar eru alfriðaðir á Íslandi. Náttúrufræðistofnun fylgist með stofnbreytingum fálka.
Annað nafn íslenska fálkans er Valur. Mögulega kemur það nafn af upprunalegri merkingu þess orðs sem er vopndauði, enda fálkinn mikið veiðidýr og liggur veiðibráð fálkans oftast í valnum.
Valur kemur líka fyrir í norrænni goðafræði, þar sem Freyja, vanadís og frjósemisgyðja, átti valsham, sem hún lánaði Loka þegar endurheimta þurfti Hamar Þórs, Mjölni frá Þursum.
[breyta] Heimildir
- „Náttúrufræðistofnun - Fálkarannsóknir“. Sótt 4.mars 2006.
- Greinin „Gyrfalcon“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 4. mars 2006.